Reykjavík – Istanbul 2014

Upphaf þessarar sögu má rekja til þess að einn daginn vaknaði maður úti í bæ við það að hann þyrfti að fara í hnattferð á mótorhjólinu sínu. Hann hafði fyrir aðeins liðlega tveimur árum stigið í söðulinn fyrsta sinni og þó hann væri kannski ekki heltekinn af íþróttinni, greip hún huga hans og knúði til ævintýra. Hver afræður að fara einn síns liðs á farartæki sem hann hefur aðeins nýlega lært að stjórna og hemja?