Sanandaj til Urmia
Frá Sanandaj var málið núna bara að koma sér til Urmia, sem gekk að mestu vandræðalaust þrátt fyrir leiðinda strekking á köflum. Enn ökum við um hálendisvegi í um 1.600 til 1.800 m hæð, eru þetta landbúnaðarhéruð sem fyrr og náttúran gleður augað. Fá stöðuvötn bar fyrir augu á allri okkar för um landið Eins …